| NÝJUNG Á ÍSLANDI - PRESSWOOD VÖRUBRETTI
Leiðandi hollenskur vörubretta framleiðandi haslar sér völl á Íslandi. Presswood vörubretti hafa verið til sölu um allan heim í rúmlega 36 ár og eru nú loksins til sölu á Íslandi í gegnum BakkaBretti ehf, sem eru umboðs- og dreifiaðilar fyrir þessar frábæru vörubrettalausnir.
Presswood vörubretti eru í 16 mismunandi stærðum og gerðum. Nýjustu brettastærðirnar eru 1/4 EURO, 1/3 EURO og 1/2 EURO. Hægt að fá brettin í allt að 5 stærðum þ.e. með burðargetu 250 kg, 350 kg, 500 kg, 900 kg og 1250 kg.
Presswood vörubretti eru allt að 52% léttari og þau taka rúmlega 70% minna pláss þegar þau eru tóm og samstöfluð í samanburði við venjuleg viðar EURO vörubretti. Þetta sparar sendendum / eigendum brettanna töluverðar fjárhæðir og sérstaklega þeim sem vilja endurheimta og endurnota vörubrettin aftur og aftur.
EBS SPRAUTUPRENTARAR
Vara: EBS 250 - Traustur og öflugur hand-bleksprautuprentari með auðskiptanlegu blekhylki. Notendur geta prentað hvar sem er á vöruna eða skilaboð á kassa eða aðrar ytri umbúðir. Í prentaranum eru fáir slitfletir þar sem hann er með innbyggðri blekdælu. Sérhannaður til að prenta hverskonar tákn og letur á hvaða tungumáli sem er. Getur m.a. prentað vörumerki og 100% læsileg strikamerki. Skýr og góð prentun. Hraðvirkur, sveigjanlegur og einfaldur í notkun. Uppfærsla er gerð með þráðlausu sambandi í gegnum tölvu. EBS á einkaleyfi á þessari tækni og er jafnframt leiðandi vörumerki á heimsmarkaðnum. meira
Vara: EBS HANDJET 230 PicAS, Frábærlega hannaður bleksprautuprentari fyrir
mismunandi afkastamiklar framleiðslulínur. Léttur og fyrirferðarlítill.
Bleksprautuprentarar fyrir stórt letur (LCP) sem notar ´drop-on-demand (DOD)
smádropatækni sem er ódýr og áreiðanleg leið til að merkja ytri umbúðir.
Tækið kemur með allan stjórn- og hugbúnað.
Eiginleikar: Hægt að prenta á hlið vörunnar, ofan á eða undir. Íslenskt
lyklaborð í gegnum fartölvu eða PC borðtölvu, einfalt notendaviðmót. Skýr og
góð prentun, hvar sem er á vöruna. Fáir slitfletir og prentarinn er með
innbyggða eigin loftdælu. Þetta tryggir lágmarks rekstrar- og viðhaldskostnað. meira
|