Bakka Bretti Presswood Pallets  SPURT OG SVARAÐ

Hér fyrir neðan eru nokkrar algengar spurningar sem við hjá BakkaBretti höfum fengið og svör við þeim. Ef þú hefur spurningar sem ekki er svarað hér þá endilega sendu okkur línu og við svörum um hæl

SPURT. Hvers konar fyrirtæki er BakkaBretti ehf?
SPURT. Hvaða efni eru notuð til að framleiða Presswood BakkaBretti?
SPURT. Er komin nógu löng reynsla á þessa tegund af brettum til að það sé hægt að treysta þeim?
SPURT. Hvað er Sótspor?
SPURT. Geta Presswood BakkaBretti hjálpað fyrirtæki mínu að minnka Sótspor sitt? (e. CO2 - Carbon Footprint)
SPURT. Af hverju er Presswood BakkaBretti undanþegin frá því að þurfa vottun um framleiðslu eða meðhöndlun á viðarumbúðum til útflutnings samkvæmt reglugerð nr. 343 frá Landbúnaðarráðuneytinu.
SPURT. Eru til létt vörubretti sem henta fyrir flugfragt?
SPURT. Eru Presswood BakkaBretti tilbúin til útflutnings?
SPURT. Eru Presswood BakkaBretti endurvinnanleg og endurnýtanleg?
SPURT. Sparast vöru lagerpláss þegar notuð eru Presswood BakkaBretti?
SPURT. Eru Presswood BakkaBretti vinnuvistfræðilega hönnuð?
SPURT. Er hægt að nota Presswood BakkaBretti til að hjálpa við að Kolefnajafna vörur og fyrirtæki?
SPURT. Er hægt að nota Presswood BakkaBretti fyrir sjálfvirk vörubretta röðunarkerfi og sjálfvirkar birgðageymslur?



SPURT: HVERS KONAR FYRIRTÆKI ER BAKKABRETTI EHF?

SVAR: BakkaBretti ehf er fyrirtæki sem sérhæfir sig í því að selja vörubretti og vörur sem eru tengdar pökkun vöru á vörubretti, svo sem: vörubretta-umbúðakassa, strekki-plast, brettatjakka (pallettulyftara). Við kappkostum að hafa ávallt snjallar lausni,r sem skara framúr.

Efst á síðu

SPURT: HVAÐA EFNI ERU NOTUÐ TIL AÐ FRAMLEIÐA PRESSWOOD BAKKABRETTI?

SVAR: PRESSWOOD BakkaBretti innihalda þurrkaðar kurlaðar viðartrefjar sem eru mótaðar með vistvænu þurrbindiefni, pressaðar við háþrýsting (800kg/cm²) og síðan hitaðar upp í 180°C til að eyða hverskonar skordýrum eða öðrum skaðvaldi sem gæti leynst í viðnum.

Efst á síðu

SPURT: ER KOMIN NÓGU LÖNG REYNSLA Á ÞESSA TEGUND AF BRETTUM TIL AÐ ÞAÐ SÉ HÆGT AÐ TREYSTA ÞEIM?

SVAR: PRESSWOOD BakkaBretti hafa verið í framleiðslu í yfir 36 ár og bæði framleiðendur og notendur á þessum vörubrettum eru komnir með áratuga reynslu, bæði hvað varðar framleiðslu, endurvinnslu og endurnýtingu á þeim. Presswood framleiðir rúmlega 30 milljón vörubretti á hverju ári.

Efst á síðu

SPURT: Hvað er sótspor?

SVAR: Sótspor er mæling á því magni koltvísýrings (CO2) sem fer út í andrúmsloftið við brennslu jarðefnaeldsneytis.

Efst á síðu

SPURT: GETA PRESSWOOD BAKKABRETTI HJÁLPAÐ FYRIRTÆKI MÍNU AÐ MINNKA SÓTSPOR SITT? (E. CO2 - CARBON FOOTPRINT)

SVAR: PRESSWOOD BakkaBretti geta hjálpað fyrirtækjum við að minnka Sótspor sín (CO2 - Carbon Footprint) því vörubrettin innihalda eingöngu viðurkennd umhverfisvæn efni sem öll eru endurvinnanleg. Jafnframt þessu þá eru PRESSWOOD BakkaBretti einnig 100% endurnýtanleg.

Framleiðendur PRESSWOOD BakkaBretta leggja mikla áherslu á að nota vistvæna orku, endurvinnanleg og endurnýtanleg efni, minnka úrgang og nota engin óvistvæn efni í framleiðsluna. Einnig er lögð mikil áhersla á að draga úr gróðurhúsaáhrifum og að stuðla að vistvænna umhverfi okkur öllum til hagsbóta bæði í nútíð og framtíð.

Efst á síðu

SPURT: AF HVERJU ER PRESSWOOD BAKKABRETTI UNDANÞEGIN FRÁ ÞVÍ AÐ ÞURFA VOTTUN UM FRAMLEIÐSLU EÐA MEÐHÖNDLUN Á VIÐARUMBÚÐUM TIL ÚTFLUTNINGS SAMKVÆMT REGLUGERÐ NR. 343 FRÁ LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTINU?

SVAR: Samkvæmt reglugerðum Evrópusambandsins (ES) þá flokkast PRESSWOOD BakkaBretti sem unnin viðarframleiðsla þ.e. sem krossviður og/eða spónaplötur en samkvæmt alþjóðlega plöntuverndarstaðlinum ISPM 15 (Guidelines for regulating wood packaging material in international trade), sem gefinn var út í mars 2002 af Matvæla- og Landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), þá á ISPM 15 staðallinn eingöngu við um „óunnið timbur eða hrávið, sem er notaður í viðarumbúðir, s.s. vörubretti, trékassa og annan trjávið sem notaður er til að bera, styðja við eða verja vörur í flutningi þeirra á áfangastað.“

Efst á síðu

SPURT: ERU TIL LÉTT VÖRUBRETTI SEM HENTA FYRIR FLUGFRAGT?

SVAR: Útflytjendur sem senda vörur í fragtflugi hafa hingað til notað venjuleg EUR-vörubretti til að senda vörur sínar með flugi en EUR-vörubretti eru stærstu vörubretti sem má nota fyrir venjulega flugfragt.

Presswood BakkaBretti er með á lager sérstaklega hentug EUR -vörubretti fyrir flugfragt. Þessi vörubretti eru allt að 60 prósent léttari en sambærileg bretti. Jafnframt þessum vörubrettum þá erum við líka með á lager smærri og ennþá léttari stöðluð EUR -vörubretti sem henta fyrir smærri sendingar í flugfragt. Með því að nota léttari og eða smærri vörubretti frá BakkaBretti þá sparast töluverðar upphæðir í flutningsgjöldum.

Efst á síðu

SPURT: ERU PRESSWOOD BAKKABRETTI TILBÚIN TIL ÚTFLUTNINGS?

SVAR: PRESSWOOD BakkaBretti eru tilbúin til útflutnings. Presswood BakkaBretti standast allar þær kröfur sem gerðar eru til vörubretta sem ætluð eru til útflutnings og eru viðurkennd til innflutnings til allra þeirra landa sem nú þegar hafa sett reglugerðir samkvæmt alþjóðastaðli ISPM 15.

Presswood BakkaBretti útiloka eða minnka líkurnar á því að vörursendingar þínar verði fyrir töfum vegna breytinga á innflutningsreglum þeirra landa, sem eru að byrja eða nýbyrjuð að fara eftir reglugerðum ISPM 15. Af hverju hafa áhyggjur vegna seinkana eða af löngum töfum í erlendum höfnum vegna þess að vörurnar eru ekki á viðurkenndum vörubrettum? BakkaBretti tryggja það að útflutningur þinn komist snurðulaust á áfangastað.
Mörg stærstu útflutningsfyrirtæki í heiminum hafa þegar skipt yfir í að nota Presswood BakkaBretti í staðin fyrir að nota hefðbundin viðar- vörubretti því enga viðurkenningu þarf frá yfirvöldum vegna ISPM -15 alþjóða reglugerða. Það eru sífellt fleiri lönd um allan heim sem eru að undirbúa að setja reglugerðir sem fylgja alþjóðastaðli ISPM 15.


Efst á síðu

SPURT: ERU PRESSWOOD BAKKABRETTI ENDURVINNANLEG OG ENDURNÝTANLEG?

SVAR: PRESSWOOD BakkaBretti flokkast undir hannaða umhverfisvæna vöru. Upprunalega þegar Presswood BakkaBretti voru fyrst hönnuð fyrir 36 árum síðan þá var leitast við að taka tillit til umhverfissjónarmiða, þ.e. notuð eru sem náttúrulegust efni með lágu orkuinnihaldi og þess gætt að nýting orku væri sem best og að vörubrettin væru 100% endurvinnanleg og endurnýtanleg.

Í dag þá skiptir það ennþá meira máli að hversu miklu leyti varan sjálf er endurvinnanleg og/eða endurnýtanleg. Endurnýting er umhverfisvænni en endurvinnsla vegna þess að endurvinnsla felur í sér umbreytingu úrgangsefna í vöru til upprunalegra eða annarra nota og sú endurvinnsla hefur áhrif á umhverfið. Endurvinnsla er svo aftur mun umhverfisvænni en förgun hluta og má með henni skapa mikil verðmæti og spara náttúruauðlindir, með það að markmiði að sporna við mengun umhverfisins. Presswood BakkaBretti eru bæði endurvinnanleg og endurnýtanleg.

Presswood BakkaBretti eru eingöngu framleidd úr endurunnum viðarspæni og timbri, sem kemur frá timburverksmiðjum og viðurkenndum endurvinnsluverksmiðjum um alla Evrópu, sem eru síðan flokkuð, forunnin, hreinsuð og síðan sameinuð og mótuð með vistvænum bindiefnum.

Presswood BakkaBretti eru viðurkennd sem endurunnin viðarvara, sem er laus við óvistvæn efni og óendurnýjanlegur náttúrulegar auðlindir. Presswood BakkaBretti eru líka endingagóð svo hægt er að endurnota vörubrettin aftur og aftur.

Rannsóknir sem hafa farið fram á Presswood Bakka Brettum hjá the Institut für Gartenbauwissenschaften (Institute for Garden-build-science), Landwirtschaftlich-gärtnerische Fakultät (Agricultural Faculty) hjá Humboldt Háskóla í Berlín sýna að ef notað er kurl úr Presswood BakkaBretti í trjá- og runnabeð og í jarðgerð með garðaúrgangi þá bætir það jarðveginn og örvar vöxt plantna til muna.


Efst á síðu

SPURT: SPARAST VÖRU LAGERPLÁSS ÞEGAR NOTUÐ ERU PRESSWOOD BAKKABRETTI?

SVAR: PRESSWOOD BakkaBretti raðast saman eins og eggjabakkar enda eru þau núna seld undir íslenska nafninu BakkaBretti® Samanstöfluð tóm Presswood BakkaBretti spara pláss í hlutföllunum 4:1 þegar mælt er í rúmmetrum. Þessi eiginleiki að geta staflað vörubrettunum inn í hvort annað sparar allt að 66% af dýrmættu rúmmetraplássi bæði við geymslu og flutning á vörubrettunum.

Efst á síðu

SPURT: ERU PRESSWOOD BAKKABRETTI VINNUVISTFRÆÐILEGA HÖNNUÐ?

SVAR: PRESSWOOD BakkaBretti eru vinnuvistfræðilega hönnuð með það fyrir augum að gera þau einstaklega notendavæn. Léttari vörubretti, rúnnuð horn og kantar bæta vinnuaðstæður fyrir starfsmenn og hjálpa til að fyrirbyggja að starfsmenn meiði sig við að meðhöndla vörubrettin og jafnframt varna því að pökkunarplast eða umbúðir rifni vegna hvassra brúna og kanta. Engir naglar, skrúfur, boltar eða hefti eru notuð við framleiðslu á Presswood BakkaBrettum.

Efst á síðu

SPURT: ER HÆGT AÐ NOTA PRESSWOOD BAKKABRETTI TIL AÐ HJÁLPA VIÐ AÐ KOLEFNAJAFNA VÖRUR OG FYRIRTÆKI?

SVAR: PRESSWOOD BakkaBretti eru í sumum tilvikum allt að 60% léttari en sambærileg vörubretti sem sparar eldsneyti í hverskonar vöruflutningi svo sem við flutning með vörubílum, sjófrakt eða flugfrakt, sem hjálpar að vinna gegn ofhlýnun andrúmsloftsins. Þetta á jafnt við hvort sem vörubrettin eru í flutningi fullhlaðin eða tóm.

PRESSWOOD BakkaBretti geta hjálpað fyrirtækjum við að minnka sótspor sín (CO2 Carbon Footprint) því vörubrettin innihalda eingöngu viðurkennd umhverfisvæn efni, sem öll eru endurvinnanleg. Jafnframt þessu þá eru PRESSWOOD BakkaBretti einnig 100% endurnýtanleg.

Framleiðendur PRESSWOOD Bakka Bretta leggja mikla áherslu á að nota vistvæna orku, endurvinnanleg og endurnýtanleg efni, minnka úrgang og nota engin óvistvæn efni í framleiðsluna. Einnig er lögð mikil áhersla á að draga úr gróðurhúsaáhrifum og að stuðla að vistvænna umhverfi okkur öllum til hagsbóta bæði í nútíð og framtíð.  

Efst á síðu

SPURT: ER HÆGT AÐ NOTA PRESSWOOD BAKKABRETTI FYRIR SJÁLFVIRK VÖRUBRETTA-RÖÐUNARKERFI OG SJÁLFVIRKAR BIRGÐAGEYMSLUR?

SVAR: Presswood BakkaBretti eru heilsteypt eða mótuð sem eitt samfellt vörubretti. Presswood BakkaBretti hafa verið hönnuð með það fyrir augum að þau megi nota fyrir sjálfvirk vörubretta-röðunarkerfi og sjálfvirkar birgðageymslur. Á þeim eru engin samskeyti, sem tryggir það að varan skemmist ekki vegna lausra nagla, bolta eða hefta. Það er heldur engin hætta á því að varan skemmist af völdum klofins viðar eða brotinna og lausra spýtna.

back to top