|
||||||||||||||||
|
EBS HANDJET ® 250 BLEKSPRAUTUPRENTARI
EBS HANDJET 250 bleksprautuprentarinn er frábærlega hannaður og einstaklega meðfærilegur, þráðlaus, bleksprautuprentari sem haldið er í hendi. Hann er hannaður með það fyrir augum að prenta á plast, stál, steinsteypu, pappa, timbur, gler og fleiri efni og hentar því öllum fyrirtækjum, sem þurfa að merkja vöru sína. Þessi prentari er einstaklega einfaldur í notkun og sameinar alla jákvæða eiginleika bleksprautuprentara vegna þess hve frábærlega meðfærilegur hann er. Skel eða ytra birði bleksprautuprentarans er úr koltrefjaplastblöndu, sem einnig er notuð við smíði háþróaðra flugvéla og kappakstursbíla. Þessi blanda sameinar mikinn styrk og góða endingu. EBS HANDJET 250 er framúrskarandi hannaður hátækni-bleksprautuprentari, sem hefur unnið eftirsótt evrópsk PIF gullverðlaun fyrir frábæra tæknilega hönnun og lausn á leiðum vanda við að merkja vörubretti og lausavöru. Útlit og lag bleksprautuprentarans minnir einna helst á rafhlöðuknúna borvél.
EBS HANDJET 250 er þróaður í kringum valve-jet og drop-on-demand (DOD) smádropatækni, HANDJET 250 býður notendum upp á að prenta á vörur eða hluti þar sem maður þarf, þegar maður þarf og með betri leturgæðum en hægt er að ná fram með því að nota hefðbundna stensla eða stimpla. EBS HANDJET 250 bleksprautuprentarinn er einstaklega fyrirferðalítill, léttur og mjög einfaldur í notkun. Notandi vélarinnar tekur í gikk eins og á borvél og rúllar stýrihjólum til hægri eða vinstri eftir yfirborði hlutarins sem á að prenta á ákveðin skilaboð eða merkingu. Bleksprautuprentarinn er knúinn áfram með öflugri, innbyggðri, 24 volt Li-Ion rafhlöðu sem getur enst í allt að 50 klukkustundir án þess að stoppa, og það tekur innan við 2.5 klukkustundir að endurhlaða hana. Prentuð skilaboð eða merkingar eru búin til á tölvu sem notar Windows ® 98SE / ME /NT Innihald blekhylkisins (110 ml) endist til að prenta allt að 100,000 stafi með 7x5 punkta upplausn eða í allt að 17,000 stafi í 16x10 punkta leturupplausn. Bleksprautuvélin kemur með sérhannaðri plasttösku sem í er hreinsefni, 24V/1A DC hleðslutæki fyrir rafhlöðu, tvö blekhylki, notendaforrit sem keyrir í Windows og lítill þráðlaus USB tengdur sendir. Fyrir þá sem ekki eru með USB tengi á tölvunni þá fylgir einnig RS232 tengi og snúrur. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Bakkabretta ehf, sem jafnframt bjóða þér faglega ráðgjöf við val á réttri bleksprautu-lausn. Síminn er 4960726
|
![]() BAKKABRETTI KYNNIR BETRI LAUSNIR Á ÍSLENSKU SJÁVARÚTVEGS-SÝNINGUNNI 2.-4. OKTÓBER 2008: PRESSWOOD BakkaBretti fyrir sjávarútveginn á sýningarbás P40 BakkaBretti tekur þátt í Íslensku Sjávarútvegssýningunni í sýningarhöll í Smáranum í Kópavogi og mun m.a. kynna sótsporlaus, heilsteypt og frábærlega létt viðurkennd útflutningsvörubretti, brettakassa og EBS bleksprautur. BakkaBretti verður í sýningarbás númer P40. BakkaBretti hvetur alla gesti Íslensku Sjávarútvegss- ýningarinnar til að kíkja í heimsókn í bás fyrirtækisins, þar sem sérfræðingar okkar munu veita faglega ráðgjöf á þeim lausnum sem kynntar eru. BAKKABRETTI ... og þannig mætti lengi telja! ![]() ![]() ![]() ![]() |
|||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||
BakkaBretti ehf S (tel): 5170605
|
||||||||||||||||
Copyright © Melcomedia 2007- 2008 |
||||||||||||||||