|
||||||||||||||||
|
Bakkabretti ehf er leiðandi í sölu og þjónustu á færibanda- og vöruhúsaprentlausnum fyrir fyrirtæki og við bjóðum upp á ýmsar hugmyndaríkar lausnir:
INK-JET EBS 230 PicAS er frábærlega hannaður þráðlaus bleksprautuprentari fyrir mismunandi afkastamiklar framleiðslulínur. Einstaklega nettur, vandaður og fyrirferðarlítill iðnaðar-bleksprautuprentari fyrir stórt letur (LCP). Upprunalega hugmyndin bak við PicAS bleksprautprentarann var að bjóða viðskiptavinum hágæða færibanda bleksprautuprentara á viðráðanlegu verði. INK-JET EBS 230 PicAS er þróaður í kringum valve-jet og drop-on-demand (DOD) smádropatækni sem er ódýr og áreiðanleg leið til að merkja ytri umbúðir. Boðið er upp á allan stjórn- og hugbúnað. Hægt er að prenta á allar hliðar vörunnar. Við uppfærslu er notað íslenskt lyklaborð í gegnum fartölvu eða borðtölvu. Prentaranum fylgir notendaforrit með afburðagott og vinalegt notendaviðmót (interface), sem býður upp á fjölbreytta möguleika í prentun.
INK-JET EBS PicAS getur prentað allt að 4 línur; t.d. dagsetningu, lotunúmer og síðasta söludag. Skýr og góð prentun, hvar sem er á vöruna. Fáir slitfletir og þar sem prentarinn er með innbyggða loftdælu þá tryggir þetta lágmarks rekstrar- og viðhaldskostnað. INK-JET EBS 230 PicAS er með einfaldan háþróaðan prenthaus sem skilar ofurhraða og hámarksgæðum sem á sama tíma setur ný viðmið í samanburði við aðra færibanda-bleksprautuprentara. EBS PicAS notar svokallaða Piezo-tækni sem felur í sér hárfína. stýringu á bleksprautunni. Þetta er tækni sem mætir vaxandi kröfum fyrirtækja og aukinni samkeppni. HAGKVÆMARI PRENTUN INK-JET EBS 230 PicAS er sérstaklega hraðvirkur, áreiðanlegur og einfaldur í notkun. Með því að bera saman EBS PicAS bleksprautuprentara við helstu keppinauta, þá kemstu að því að EBS PicAS bleksprautuprentarar eru mun hagkvæmari í rekstri en aðrir sambærilegir færibanda-bleksprautuprentarar. Þrátt fyrir að vera ódýr, smár í sniðum og einfaldur í útlti þá hefur EBS 230 PicAS marga af sömu eiginleika og stórir, dýrari og mun flóknari færibanda-bleksprautuprentarar hafa. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af gæðum eða kostum þessa frábæra bleksprautublekprentara. Fyrirtækið EBS InkJet GmbH í Þýskalandi er í fararbroddi í heiminum í dag hvað varðar gæðahönnun og framleiðslu þráðlausra hand-bleksprautuprentara og fastra færibanda-bleksprautuprentara lausna og eru bleksprautuprentarar frá fyrirtækinu þekktir fyrir einstaklega lága bilanatíðni. Gæðastýring innan fyrirtækisins er að öllu leyti í samræmi við alþjóðlega gæðastaðalinn ISO 9001-2000. Bakkabretti ehf leggur áherslu á faglega viðgerða- og varahlutaþjónustu fyrir öll seld tæki. |
... og þannig mætti lengi telja! ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
|||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||
BakkaBretti ehf |
||||||||||||||||
Copyright © Melcomedia 2007- 2012 |
||||||||||||||||